3.9.19

Kakadu þjóðgarðurinn

Dagsferð í Kakadu þjóðgarðinn miðvikudaginn 7. ágúst. Fórum í Warradjan Cultural Centre þar sem var kynnt líf Bininj fólksins. Mjög merkileg innsýn í lífshætti þeirra. Mikil viska og áhersla á að varðveita menninguna. Byrjar allt á tungumálinu. "Við notum okkar eigin tungumál til að tjá okkur" segja þeir. "Flestir tala fleiri en eitt tungumál og enskan er okkar annað eða þriðja mál. " Og svo er ótrúlega falleg lýsing á varðveislu tungumálsins, því tungumálið er grunnur að sjálfsmynd og menningu. Tungumál Bininj fólks heitir Gun-djeihmi.

Siðan fórum við á slóðir þar sem veggmyndir eru teiknaðar á klettaveggi. Þær eru á landsvæði frumbyggja sem hétu Warramal og eru ekki er lengur til. Bininj fólkið hefur tekið að sér varðveislu myndanna. Hvíti maðurinn kallar myndirnar Nourlangie steinamyndir, en þau biðja um að þær séu nefndar Burrunggui og Anbangbang. Við skulum líta á dæmi, Burrunggui eru léttari, eins konar nytjamyndir:



Anbangbang eru alvarlegri og tjá dýpri leiðsögn, "dreamtime" sannleika.



Kakadú þjóðgarðurinn er einnig uppfullur af magnaðri náttúru. Við fórum í ferð á fljótabáti um það sem Ástralar kalla "billabong" og eru árbugður, sem eftir standa fullar af vatni eftir að megináin hefur breytt um farveg, skorið af sér bugðuna. Þetta er algengt fyrirbrigði í Ástralíu og hugtakið þarlenskt. Í Yellow River Billabong sáum við krókódíla, margs kyns fugla við ána og meira að segja vísund, sem vestrænir menn fluttu inn í Ástralíu.




Tiwi eyjar

Tiwi-frumbyggjar búa á tveimur eyjum norður af Darwin. Fórum í dagsferð fimmtudaginn 8. ágúst, byrjað á tveggja klukkustunda siglingu frá Darwin. Farþegar eru túristar og eyjaskeggjar á leið heim, falleg fjaran tekur á móti okkur.

Lítil rúta flytur okkur á samkomustað þar sem heimamenn kynna okkur líf sitt og siði, afar einlægir og gefandi. Strangar reglur gilda um samneyti og hverjir megi giftast hverjum, byggt á fjölskyldum mæðra. Sýna foreldrum og gildandi lögmálum mikla virðingu. Við fáum að sjá myndlist, þeir mála sig og dansa fyrir okkur. ganga með okkur inn í skóginn, inn á safn um sögu sína. Eru góðir sögumenn.
Eyjarnar eru tvær, Bathurst og Melville, saman kallaðar Tiwi eyjar. Tiwi fólkið hefur búið þar lengi, kaþólskt trúboð hefur haft töluverð áhrif á eyjunni, nunnur halda uppi skólastarfi. Ferðamenn eru í lokin leiddir inn í safnbúð með myndlist þeirra. Mjög vel staðið að gestamóttökunni og allt í höndum eyjaskeggja.



2.9.19

Litchfield National Park

Fyrsta dagsferðin var í Litchfield þjóðgarðinn, suður af Darwin. Tess Atie fer með okkur á heimaslóðir fjölskyldunnar ásamt Greg Balding eiginmanni sínum. Ferðin er ævintýri á slóðir náttúru og frumbyggja. Tess sýndi okkur ýmsar jurtir og verklag í skóginum, t.d hvernig snæri er búið til úr stráum.


Við sáum termítastöpla út um allt í skóginum og stilltum okkur upp frammi fyrir einum slíkum. Og við fengum að smakka á ýmsu góðgæti, eins og maurum með sítrónubragði.


Og við sáum leðurblökur hangandi uppi í tré og kónguló í vef sínum. 




Við fengum að njóta náttúrunnar, synda í vatnsuppsprettum, horfa á fossa og kletta og njóta frábærra ferðafélaga. Þessi kynni settu mark sitt á það sem eftir fór í þessu fagra landi.



Hér eru ferðafélagarnir Kerry, Nancy, Trevor, Greg, Tess, Maija, Pat, Gía og Atli. Við mælum heils hugar með ferðum þeirra hjóna, Northern Territory Indigenous Tours, http://www.ntitours.com.au/


Welcome to Country

Frumbyggjar hafa lifað í Ástralíu í 65.000 ár. Þess vegna kemur leiðtogi þeirra og býður gesti velkomna á landsvæðið í upphafi viðburða. SASPA-ráðstefnan í Adelaide hófst með ávarpi Mickey Kumatpi Marrutya O'Brien, fyrir hönd Kaurna-þjóðarinnar. Hann kallaði mig upp á sviðið, þar sem Peter Mader hafði sagt mig lengst að komna. Mickey bauð mig velkomna, hélt á Eucalyptus trjágrein og bað mig að taka af eitt lauf og gerði sjálfur hið sama. Hann braut sitt lauf, rétti mér og sagði að við skyldum skiptast á laufum. Laufin bæru dna okkar og því værum við táknrænt að deila þekkingu og menningu okkar á milli.