Adelaide er höfuðborg sambandsríkisins Suður Ástralíu. Sambandsríkin eru kölluð 'states' og ríkið sjálft kallað 'commonwealth'. Vegna sögulegrar þróunar landnáms í Ástralíu eru sambandsríkin mjög sjálfstæð og vilja oft ekki mikla afskiptasemi af hálfu ríkisins. Þannig eru skólamál undir stjórn sambandsríkjanna, en vissulega fá þau úthlutað fjármunum til málaflokksins frá ríkinu. Ég fór á ráðstefnu skólastjóra framhaldsskóla sambandsríkisins dagana 15. og 16. ágúst, heimsótti nokkra framhaldsskóla og hitti nokkra embættismenn, m.a. ráðgjafa menntamálaráðherra. Peter Mader, forseti SASPA (South Australian Secondary Principal's Association) átti veg og vanda að skipulagningu dvalarinnar sem stóð frá 14. til 30. ágúst 2019. Ég er honum afar þakklát fyrir greiðasemina.
Við dvöldum fyrstu þrjár næturnar á hóteli í miðbænum, en eftir það í Airbnb íbúð í Prospect sem er virðulegt hverfi norður af miðbænum. Við skoðuðum söfnin í bænum, South Australian Museum með mörgum munum tengdum frumbyggjum, listasfnið, innflytjendasafnið, grasagarðinn, National Wine Center og Tandanya-menningarmiðstöð frumbyggja. Rétt hjá okkur í Prospect var flott kvikmyndahús sem kom sér vel, við gengum um hverfið og borgina, lásum, lærðum og nutum þess að hvíla okkur eftir ferðaannríki í upphafi Ástralíudvalarinnar. Og ekki síst að fylgjast með þjóðmálaumræðunni og kynnast þjóðaríþróttinni Footy, sem mikil ástríða er fyrir. Svo virðist sem allir landsmenn eigi sitt uppáhaldslið. Fólkið var afar elskulegt og tók okkur vel, m.a. áttum við kaffistund með rithöfundinum Hannah Kent, sem skrifaði "Náðarstund". Móðir hennar var á skólastjóraráðstefnunni og skipulagði þennan ánægjulega hitting í Prospect viku síðar.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli